Erlent

Kona lést í sveðjuárás í Þýskalandi

Atli Ísleifsson skrifar
Kona er látin og tveir særðust í sveðjuárás manns í miðborg bæjarins Reutlingen, suður af Stuttgart, í dag.

Þýskir fjölmiðlar greina frá árásinni og segja lögreglu hafa handtekið árásarmanninn.

Süddeutsche Zeitung segja ekkert liggja fyrir um ástæður árásarinnar, en fram kemur að vitni segja árásarmanninn og hina látnu hafa átt í háværum deilum í aðdraganda árásarinnar.

Uppfært 16:50: Lögregla í Þýskalandi segir í yfirlýsingu að árásarmaðurinn hafi verið 21 árs sýrlenskur hælisleitandi. Hann hafi áður komið við sögu lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×