Innlent

Kona höfuðkúpubrotnaði í Biskupstungum

Randver Kári Randversson skrifar
Vísir/Róbert
Kona slasaðist á höfði þegar hún féll í stiga í íbúðarhúsi í Biskupstungum síðastliðið laugardagskvöld. Talið var að konan hefði höfuðkúbubrotnað í fallinu. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á staðinn og flutti konuna á slysadeild Landspítala.

Tilkynnt var um tvær bílveltur í Árnessýslu um helgina. Önnur var á Hvammsvegi í Ölfusi og hin á Skálholtsvegi. Enginn slasaðist alvarlega í þessum óhöppum.

Þá stöðvaði lögreglan á Selfossi tuttugu ökumenn fyrir of hraðan akstur í síðustu viku og einn fyrir að aka sviptur ökuréttindum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×