Innlent

Kona barin til dauða í Nígeríu

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Liðsmenn hryðjuverkasamtakana Boko haram.
Liðsmenn hryðjuverkasamtakana Boko haram. VÍSIR/AFP
Múgur manns barði unga konu til dauða í Bauchi í norðausturhluta Nígeríu í gær.Haldið var að hún ætlaði að svipta sig lífi í sjálfsmorðssprengjuárás.

Frá þessu er greint á vef BBC.

Ráðist var að konunni þegar hún neitaði að láta leita á sér við inngang matvöruverslunar. Engar sprengjur fundust á konunni.

Margar sjálfsmorðssprengjuárásir hafa verið framdar undanfarið í norðurhluta Nígeríu af hryðjuverkasamtökunum Boko Haram.

Vitni að árásinni segja múginn hafa hellt olíu yfir höfuð konunnar og kveikt í eftir að hafa barið hana. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×