Innlent

Kona á Akureyri að kafna í köttum

Jakob Bjarnar skrifar
Bjargvættur kattanna á Akureyri. Hún sættir sig vel við að vera kölluð Kattakonan fyrir norðan.
Bjargvættur kattanna á Akureyri. Hún sættir sig vel við að vera kölluð Kattakonan fyrir norðan.
Ragnheiður Gunnarsdóttir er mikill dýravinur og hún hefur nú árum saman starfað við það í sjálfboðavinnu að annast ketti sem lenda á vergangi á Akureyri. Nú er svo komið að hús hennar er orðið troðfullt af köttum. Hún hefur varla tölu á því lengur, en telst til að hún sé með 16 kettlinga og 8 fullorðnar. „Já, fyrir utan mína. Ég er að reyna að gera talningu,“ segir Ragnheiður í samtali við Vísi.

Villikattastofn á Akureyri

Ragnheiður segist hafa verið að fylgst sérstaklega með villiköttum bæjarins allt frá árinu 2002, henni hafi runnið til rifja hversu illa var fyrir þeim mörgum komið og árið 2012 stofnaði hún Kisukot, sem er í raun heimili hennar.

Og, nú ert þú sem sagt að kafna í köttum?

„Já, það má segja það,“ segir Ragnheiður í léttum dúr. „Ég fór að taka inn villiketti þegar svo bar undir og svo hafði fólk líka samband ef ketti var að finna. Ég reyni aðallega það taka þessa ketti inn sem eru úti. Bjarga þeim. Þannig að þeir verði ekki villikettir. Þeir hafa forgang hjá mér.“

Í nægu er að snúast hjá Ragnheiði við að sinna öllum þeim köttum sem hún hefur skotið skjólshúsi yfir.
Ragnheiður segir að það sé gamall villikattastofn á Akureyri, þannig sé í raun í flestum bæjarfélögum.

Köttum hent út á guð og gaddinn

„Og svo er líka alltaf að finna heimilisketti sem fólk hefur hreinlega hent út á guð og gaddinn. Skyldir eftir í pappakössum. Mikið vandamál í Reykjavík. Og líka á Akureyri. Meira um það með þessa stóru að fólk hefur týnt þeim eða losað sig við þá. Í það minnsta svara fæstir auglýsingum.“

Ragnheiður segir Akureyrarbæ ekkert standa sig of vel í þessum efnum. „Hann er með sinn dýraeftirlitsmann. En, það er bara lógað eftir einhvern vissan tíma, dýrageymslur, ekkert verið að reyna að finna heimili fyrir dýrin.“

Oft kölluð „Kattakonan“

Og nú er húsið þitt fullt af köttum?

„Jú, ég er að komast í vandræði með þetta. Og hef aldrei frí. Og auðvitað fylgir að maður þarf að standa í þrifum meira en gerist og gengur. Það gengur ágætlega að koma kettlingunum út, þeir fá oftast heimili, en gengur verr að koma þessum stóru út. Ég er nú með fimm sex vikna kettlinga sem eru búnir að vera hjá mér síðan þeir fundust úti nýfæddir; eitt got, fimm saman. Voru villikettir, fæddir af villiketti,“ segir Ragnheiður sem oft er kölluð kattakonan á Akureyri: „Ég sætti mig bara við það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×