Enski boltinn

Komast leikmenn Liverpool framhjá Heaton?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aðeins einn leikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og er það viðureign Liverpool og Burnley.

Liverpool hefur skorað 19 mörk á fyrstu 30 mínútum leikjanna í vetur, fimm fleiri mörk en öll hin liðin. 

Sadio Mane hefur komið beint að fjórum af síðustu fimm mörkin Liverpool á Anfield. Hann hefur skorað þrjú og gefið eina stoðendingu.

Tom Heaton hefur varið fleiri skot en allir aðrið markmenn í topp fimm deildunum í Evrópu á þessu tímabili og oft bjargað Burnley. Burnley er aðeins þremur stigum frá því að slá besta árangur félagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Liverpool er í fjórða sæti deildarinnar með 52 stig en Burnley er í því tólfta með 31 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×