Íslenski boltinn

Komast KR-ingar í undanúrslitin áttunda árið í röð?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KR-ingurinn Óskar Örn Hauksson og FH-ingurinn Davíð Þór Viðarsson í leik liðanna fyrr í sumar.
KR-ingurinn Óskar Örn Hauksson og FH-ingurinn Davíð Þór Viðarsson í leik liðanna fyrr í sumar. Vísir/Stefán
Undanúrslit Borgunarbikars karla fara fram um helgina, hefjast í dag með leik ÍBV og Fylkis í Eyjum (klukkan 16.00) en lýkur á Akureyri á mánudagskvöldið með leik 1. deildarliðs KA og Fjölnis (klukkan 18.00).

Stórleikirnir eru báðir á sunnudaginn þegar Víkingar taka á móti Val í Fossvoginum klukkan 19.15 og KR-ingar taka á móti FH í Frostaskjóli klukkan 20.00 en sá leikur er í beinni á Stöð 2 Sport.

KR-ingar eru ríkjandi bikarmeistarar og hafa unnið bikarinn þrisvar á síðustu fjórum árum. FH-liðið er aftur á móti komið í átta liða úrslitin í fyrsta sinn í fimm ár eða síðan að liðið varð bikarmeistari síðast haustið 2010.

FH-ingar eru á leiðinni í bikarleik í Vesturbænum í þriðja sinn frá 2010 og þeir hafa tapað hinum tveimur. KR-liðið hefur fyrir löngu sannað sig sem mikið bikarlið enda unnið 11 bikarleiki í röð á KR-velli og KR á nú möguleika á undanúrslitunum áttunda árið í röð.

Síðastir til að slá KR út úr bikarnum á KR-vellinum voru Valsmenn í 16 liða úrslitunum sumarið 2007, en verðandi Íslandsmeistarar það sumar unnu þá 3-0 sigur í vítakeppni. Valur er eina liðið sem hefur unnið bikarleik á móti KR á KR-vellinum undanfarinn áratug en Valsliðið sló KR einnig út á leið sinni að bikarmeistaratitlinum 2005.

Heimir Guðjónsson hefur þjálfað FH-liðið frá 2008 og gert liðið fjórum sinnum að Íslandsmeisturum. Bikarinn hefur hins vegar aðeins komið einu sinni í hús á þessum sjö árum og enn fremur hefur FH-liðið aðeins einu sinni komist í gegnum átta liða úrslitin í þjálfaratíð hans. FH-ingar hljóta vera orðnir hungraðir í bikartitil.

KR og FH hafa mæst einu sinni áður í Pepsi-deildinni í sumar og þá unnu FH-ingar 3-1 sigur á KR-vellinum þrátt fyrir að vera undir á 72. mínútu leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×