Innlent

Kom sérstaklega til landsins vegna kjötsúpudagsins

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Kjötsúpudagurinn var haldinn hátíðlegur í dag, á fyrsta vetrardegi, eins og verið hefur síðustu ár. Veðrið var prýðilegt en fjöldi fólks mætti á Skólavörðustíg til að bragða á ljúffengri kjötsúpu í kuldanum.

Meðal gesta á kjötsúpudeginum var hin bandaríska Stacy Jenson, en hún kom sérstaklega hingað til lands ásamt fjölskyldu sinni til að fara á kjötsúpudaginn

„Við vorum hérna fyrir nokkrum árum og vildum endilega koma aftur með dóttur okkar og upplifa kjötsúpudaginn. Þessi súpa er alveg frábær,“ segir hún og bætir því við að ferðin hafi verið vel þess virði.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×