Köllur

Vísir Jólavefur 01. nóvember 2011 03:13
Þessar kökur líkjast Sörum, en heita Köllur, að sögn Karenar Þórsteinsdóttur sem sendi jólavefnum uppskriftina.

Innihald:

400 gr marsipan
100 gr flórsykur
100 gr sykur
100 gr kókósmjöl
5 Stífþeyttar eggjahvítur
Grænt pístasíu marsipan
Dökkt gott hjúpsúkkulaði

Aðferð:

Eggjahvítur eru stífþeyttar með sykrinum,marsipan rifið útí og kókósmjölinu bætt við.

Sett með teskeið á bökunarplötuna (hafa bökunarpappír undir ). Bakað í 7 mín við 200°C.
Kökurnar kældar, síðan er grænu pístasíu marsipani sprautað á botninn og honum dýft í dökkt súkkulaði.

Fleiri fréttir - Jólavefur

Ţú ert hér: Forsíđa / Jólavefur / Köllur