Innlent

Kölluð út vegna ítrekaðs partýstands í Garðabæ

Atli Ísleifsson skrifar
Lögreglan hafði í nótt afskipti af fjölda fólks sem grunað er um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Lögreglan hafði í nótt afskipti af fjölda fólks sem grunað er um akstur undir áhrifum fíkniefna. Vísir/Pjetur
Lögreglan hafði afskipti af húsráðanda íbúðar í Garðabæ upp úr klukkan eitt í nótt, þar sem nágrannar höfðu ítrekað kvartað yfir partíhávaða frá íbúðinni, ekki bara í nótt, heldur undanfarna daga.

Þegar lögreglan kom á vettvang þótti henni ástæða til að framkvæma leit að fíkniefnum, sem húsráðandi heimilaði, og fannst eitthvað af fíkniefnum í íbúðinni.

Skömmu síðar var lögreglan beðin um að fjarlægja unga ölóða konu, sem var gestkomandi á heimili í Vesturbæ Reykjavíkur. Hún sefur nú úr sér í fangageymslu.

Lögreglan hafði í nótt afskipti af fjölda fólks sem grunað er um akstur undir áhrifum fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×