Fótbolti

Koller: Frábært að Heimir sé tannlæknir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Marcel Koller, landsliðsþjálfari Austurríkis, var í dag spurður hvað honum þætti um að kollegi hans í íslenska landsliðinu væri tannlæknir.

Var þar vitanlega átt við Heimi Hallgrímsson sem starfar sem tannlæknir samhliða knattspyrnuferlinum.

„Það er frábært. Það er frábært ef að hann getur látið þetta ganga upp og halda utan um bæði störfin,“ sagði Koller við spurningunni sem kom frá austurrískum blaðmanni. „Það er svo auðvitað mikill kostur að hafa tannlækni í hópnum ef að einhver í honum fær tannverk.“

Koller var einnig spurður hvort að það myndi hagnast íslenska liðinu betur ef að það verður mikil rigning á vellinum á morgun.

„Við getum líka spilað í rigningu. En kannski hafa þeir smá forgjöf í því þar sem að þeir eru ef til vill vanari því. En ég er sannfærður um að það verði gæði leikmanna og hlaupageta sem muni ráða úrslitum. Ég á von á leik sem verður í jafnvægi og að bæði lið munu fá færi.“

Hann vildi lítið segja um hvaða leikkerfi austurríska liðið myndi beita og í hvaða stöðu lykilleikmenn eins og David Alaba myndi spila.

„Það er margt sem ég hef í huga. Þið þekkið mig. Þið vitið að vanalega verst ég ekki mjög djúpt. Þið verðið bara að bíða og sjá til.“

Austurríki hefur ekki enn náð að skora á mótinu til þessa og þarf að vinna á morgun til að komast áfram. Koller hefur fulla trú á sínum mönnum.

„Við ætlum okkur að spila fótbolta. Við höfum fengið færi, líka gegn Portúgal sem er með mjög sterkt lið. Nú snýst þetta um að nýta færin og láta taugarnar ekki hafa betur. Það skiptir ekki máli hvernig, boltinn verður bara að fara yfir línuna.“

„Austurríki hefur aldrei áður komist upp úr riðlakeppninni á EM. Það væri mikill árangur fyrir landið allt ef að það tækist, fyrir leikmennina og starfsliðið.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×