Íslenski boltinn

Kolbeinn tryggði Leikni sigur á Fjölni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kolbeinn, til hægri á myndinni, var hetjan í dag.
Kolbeinn, til hægri á myndinni, var hetjan í dag. vísir/valli
Kolbeinn Kárason tryggði Leikni Reykjavík sigur á Fjölni í riðli 4 í Lengjubikar karla, en liðin mættust í Egilshöll í dag.

Leiknir vann einnig sinn fyrsta leik í mótinu þegar liðið vann 1-0 sigur á Þrótti, en Fjölnir hefur tapað báðum leikjum sínum. Þeir töpuðu gegn FH í fyrstu umferðinni.

Sigurmark leiksins kom á 27. mínútu og það gerði Kolbeinn Kárason, en fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 1-0.

Leiknir leikur í fyrstu deildinni í sumar, en Fjölnir spilar í Pepsi-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×