Fótbolti

Kolbeinn lék seinni hálfleikinn í markalausu jafntefli

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kolbeinn í baráttunni í dag.
Kolbeinn í baráttunni í dag.
Kolbeinn Sigþórsson lék seinni hálfleikinn þegar Ajax og Feyenoord gerðu markalaust jafntefli í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Kolbeinn kom inn á sem varamaður í hálfleik fyrir Pólverjann Arkadiusz Milik en tókst ekki að koma boltanum yfir línuna frekar en öðrum leikmönnum á vellinum.

Íslenski landsliðsframherjinn hefur skorað fimm deildarmörk í 15 leikjum fyrir Ajax á tímabilinu en hann hefur níu sinnum verið í byrjunarliðinu.

Hollandsmeistarar Ajax, sem hafði unnið fjóra leiki í röð fyrir leikinn í dag, er með 43 stig í 2. sæti deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði PSV.

Feynoord er í 3. sæti með 35 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×