Enski boltinn

Kolbeinn arftaki Remy?

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kolbeinn í leik með Ajax.
Kolbeinn í leik með Ajax. Vísir/Getty
QPR hefur enn áhuga að klófesta íslenska landsliðsframherjann Kolbein Sigþórsson sem leikur með Ajax í Hollandi samkvæmt heimildum Daily Mail.

QPR hefur reynt að klófesta Kolbein í sumar, en Kolbeinn framlengdi þó samning sinn við Ajax á dögunum samkvæmt heimildum Íþróttadeildar 365.

Fari svo að Loic Remy gangi í raðir Arsenal eða Chelsea eins og líkur eru á telja enskir miðlar að Harry Redknapp, stjóri QPR, taki upp veskið og kaupi Kolbein.

Harry er einnig sagður hafa áhuga á sínum fyrrum lærisveinum hjá Tottenham þeim Aaron Lennon og Andros Townsend, en Lassana Diarra gekk í raðir QPR í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×