Þessa uppskrift að Kókosæði sendi Birgitta Elín Helgadóttir
Kókosæði
8 eggjahvítur
500 g sykur
500 g kókosmjöl
100 g lakkrískurl
100 g tromp (súskkulaði britjað í teninga)
500 g Síríus suðusúkkulaði
Leiðbeiningar:
Stífþeytið eggjahvítur og sykur. Blandið brytjuðu súkkulaðinu, nammi og kókosmjölinu varlega saman við. Setjið með teskeið í litla toppa. Bakið við 180°C í 15-20 mín. Kælið.