Innlent

Kokkalandsliðið vann til gullverðlauna á HM

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér fagnar liðið sigri.
Hér fagnar liðið sigri. mynd/aðsend
Kokkalandsliðið vann gullverðlaun í Heimsmeistarakeppninni í Lúxemborg eftir frammistöðu sína í keppninni í gærkvöldi. Kokkalandsliðið hafði 6 klukkustundir til að matreiða þriggja rétta máltíð fyrir dómara og 110 gesti.

„Við erum mjög ánægð með þennan árangur. Liðið stóð sig vel í keppninni í gær og gullverðlaunin staðfesta að við erum með mjög sterkt og vel æft lið sem vinnur vel saman. Við höfum lagt áherslu á að nota hágæða íslenskt hráefni, meðal annars lambakjötið okkar, þorskinn, humarinn, skyrið og íslenskt grænmeti. Þetta hefur fallið vel í kramið hjá dómurunum. Í dómgæslunni er ekki bara bragð, útlit, samsetning og hráefnisval metið heldur er einnig tekið mið af fagmennsku við undirbúning og hvernig liðið vinnur saman að matargerðinni í keppniseldhúsinu. Í þeim þáttum  stóð liðið sig einnig vel,“ segir Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri liðsins.

Nú þegar keppninni í heitu réttunum er lokið þá tekur við undirbúningur fyrir keppnina í kalda borðinu. Kokkalandsliðið hefur tvo sólarhringa til að útbúa um 30 rétti sem verða til sýnis á keppnisstað á miðvikudaginn. Það verður unnið dag og nótt við að gera réttina klára fyrir sýningarborðið sem þarf að vera tilbúið uppsett í keppnishöllinni klukkan átta á miðvikudagsmorgun.

Matseðillinn sem fékk gullið:

Forréttur

Hægeldaður íslenskur þorskur og pönnusteiktur humar, framreiddur með epla- og jarðskokkasalati, agúrku, kínóa, skelfisksósu og dill-sinneps vinaigrette.

Aðalréttur

Grilluð íslensk lambamjöðm með vel elduðum lambaskanka og – tungu. Framreidd með seljurót, kartöflu- og sveppakrókettu, gljáðum gulrótum og perlulauk, rósakáli, baunum ásamt blóðbergs-lambasósu með sveppum.

Eftirréttur

Jarðarberja- og jógúrtmús með dökkum súkkulaðitoppi ásamt skyr-ís, möndlu-karamelluköku, þeyttum sýrðum rjóma, jarðarberjum og jarðaberjasósu.

Í Kokkalandsliðinu eru: Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri liðsins, Þráinn Freyr Vigfússon fyrirliði Lava Bláa lónið, Viktor Örn Andrésson liðsstjóri Lava Bláa lónið, Fannar Vernharðsson VOX, Bjarni Siguróli Jakobsson Slippbarinn, Ylfa Helgadóttir Kopar, Hafsteinn Ólafsson Apótekið, Axel Clausen Fiskmarkaðurinn, Garðar Kári Garðarsson Strikið, Daníel Cochran Kolabrautin, Ari Þór Gunnarsson Fiskfélagið, Hrafnkell Sigríðarson Bunk Bar og María Shramko sykurskreytingarmeistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×