Innlent

Kokkalandsliðið keppir á Ólympíuleikunum í matreiðslu

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Kokkalandslið Íslands.
Kokkalandslið Íslands. Mynd/Aðsend
Kokkalandslið Íslands keppir á Ólympíuleikum í matreiðslu sem haldnir verða í Þýskalandi 21.-26. október næstkomandi. Leikarnir eru haldnir á fjögurra ára fresti og eru stærsta og mest krefjandi keppni kokklandsliða í heiminum. Þar mætast 2000 af færustu kokum heims frá um fimmtíu þjóðum og keppa sín á milli.

Keppt er í tveimur greinum, annars vegar í heitum mat og hins vegar í köldu borði, eða Culinary Art Table. Í keppni um heita rétti er útbúinn þriggja rétta matseðill sem eldaður er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti.

Kokkalandsliðið fylgir eftir góðum árangri frá síðasta heimsmeistaramóti þar sem liði lenti í 5. sæti á heimslista. Hægt verður að fylgjast með liðinu í undirbúningi og keppni á Facebook síðu liðsins eða Instagram aðgangi þess.

Kokkalandsliðið skipa:

Þráinn Freyr Vigfússon, sjálfstætt starfandi, faglegur framkvæmdastjóri.

Bjarni Siguróli Jakobsson, Canopy hótel, fyrirliði.

Jóhannes Steinn Jóhannesson, Canopy hótel, liðsstjóri.

Steinn Óskar Sigurðsson, Vodafone, liðsstjóri.

Hafliði Halldórsson, sjálfstætt starfandi, framkvæmdastjóri.

Björn Bragi Bragason, Síminn, forseti Klúbbs matreiðslumeistara.

Ylfa Helgadóttir, Kopar.

Stefán Viðarsson, Icelandair Hotels

Hrafnkell Sigríðarson, Ion Hótel.

Hafsteinn Ólafsson, Ion Hótel.

Atli Þór Erlendsson, Grillið Hótel Saga.

Sigurður Ágústsson, Tryggvaskáli.

Axel Björn Clausen, Fiskmarkaðurinn.

Garðar Kári Garðarsson, Strikið.

Georg Arnar Halldórsson, Kolabrautin.

María Shramko, sjálfstætt starfandi.

Fannar Vernharðsson, Vox.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×