Sport

Kókaínið og þunglyndið hafði betur gegn Fury sem gefur frá sér beltin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tyson Fury er ekki lengur handhafi beltanna.
Tyson Fury er ekki lengur handhafi beltanna. vísir/getty
Hnefaleikakappinn Tyson Fury er búinn að gefa frá sér WBO og WBA-heimsmeistaratitlana sem hann vann á síðasta ári þegar hann hafði betur gegn Wladimir Klitschko. Hann hefur ekki barist síðast og tvisvar sinnum hætt við endurkomu þegar búið var að skipuleggja næsta bardaga.

Þessi 28 ára gamli Breti er búinn að viðurkenna að hann neytir kókaíns til að hjálpa sér að glíma við þunglyndi en Fury gæti misst hnefaleikaleyfið sitt síðar í dag þegar úrskurður breska hnefaleikasambandsins í máli hans liggur fyrir.

Sjá einnig:„Ég er ekki íþróttamaður - bara feitur maður“

„Ég hef nú aðra stóra baráttu í mínu lífi og rétt eins og gegn Klitschko mun ég hafa betur. Það er betra fyrir hnefaleikana og bara sanngjarnt að ég gefi frá mér beltin,“ segir Fury í yfirlýsingu sem birtist í morgun.

„Ég vann þessa titla í hringnum og mér finnst að þeir eigi að tapast í hringnum. Ég get aftur á móti ekki varið þá á þessari stundu og því tók ég þessa erfiðu ákvörðun að losa mig við heimsmeistaratitlana sem ég elska.“

Fury átti hvort sem er í hættu á að missa beltin en bæði WBO og WBA voru búin að hóta því að taka þau aftur þar sem Fury var ekki búinn að berjast í tæpt ár og hætta tvisvar sinnum við að verja titlana sína.

Aðeins eru tíu dagar síðan Fury sagðist vera hættur í hnefaleikum á Twitter. Hann hefur átt mjög erfitt undanfarna daga, meðal annars glímt við geðræn vandamál, og sagði í viðtali við Rolling Stone að vonandi myndi einhver drepa hann áður en hann myndi fremja sjálfsmorð.

Box

Tengdar fréttir

Fury var bara að grínast

Það er eitthvað furðulegt að gerast hjá þungavigtarmeistaranum í hnefaleikum, Tyson Fury.

Fury gæti misst hnefaleikaleyfið

Þungavigtarmeistarinn Tyson Fury mun væntanlega missa hnefaleikaleyfið sitt í kjölfar þess að hann viðurkenndi kókaínnotkun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×