Körfubolti

Kobe vill fá Byron Scott

Kobe Bryant.
Kobe Bryant. vísir/getty
Leitin að nýjum þjálfara LA Lakers stendur enn yfir en stjarna liðsins, Kobe Bryant, er búinn að setja pressu á stjórn félagsins.

Bryant vill fá Byron Scott, fyrrum leikmann félagsins, til þess að taka við liðinu. Hann segist eiga í nánu og góðu sambandi við  Scott.

Scott hefur þjálfað New Jersey Nets, New Orleans Hornets og Cleveland Cavaliers. Hann hefur unnið 416 leiki á ferlinum en tapað 521. Fjórum sinnum hafa hans lið komist í úrslitakeppnina á þrettán ára ferli.

Hann var síðast við stjórnvölinn hjá Cleveland leiktíðina 2012-13. Lakers er eina liðið í NBA sem er enn án þjálfara.

Byron Scott.vísir/getty
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×