Körfubolti

Kobe sterkur gegn Jazz

Kobe er búinn að jafna sig af meiðslunum.
Kobe er búinn að jafna sig af meiðslunum. vísir/getty
Kobe Bryant er kominn á fullt með LA Lakers á nýjan leik og átti fínan leik fyrir liðið í nótt.

Þá lagði Lakers lið Utah Jazz, 98-91, í æfingaleik og skoraði Bryant 26 stig í leiknum.

Carlos Boozer átti einnig fínan leik fyrir Lakers en hann skoraði 19 stig, tók 9 fráköst og stal boltanum 6 sinnum.

Alec Burks öflugastur í liði Jazz með 21 stig. Enes Kanter skoraði 14.

Bryant hefur verið lengi frá vegna meiðsla og efast margir um hversu öflugur hann getur orðið í vetur. Hann hefur í það minnsta farið ágætlega af stað á undirbúningstímabilinu og svo verður að koma í ljós hvað gerist er alvaran hefst.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×