Körfubolti

Kobe ekki hrifinn af veisluhöldunum | Myndbönd

Kobe hefur oft verið hressari.
Kobe hefur oft verið hressari. vísir/getty
Forráðamenn LA Lakers ákváðu að reyna að gleðja Kobe Bryant er hann komst í þriðja sætið á stigalista NBA-deildarinnar.

Flugvél Lakers var skreytt, ef skreytingar skal kalla, er hann kom um borð í vélina og svo fékk hann köku í fluginu.

Kobe hristi hausinn er hann kom um borð í vélina og kreisti fram falskt bros er hann fékk kökuna. Hann hafði greinilega lítið gaman af þessu.

Hann hefur aftur á móti gaman af því að vinna körfuboltaleiki og Lakers hefur lítið verið í því í vetur og það gæti verið ástæðan fyrir því að hann er ekki hrifinn af uppátækinu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×