Erlent

Klukkan tifar á hlerunarheimildir Bandaríkjanna

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Bandarískur þingheimur hefur til miðnættis að staðartíma til að vinna að endurnýjun lagana.
Bandarískur þingheimur hefur til miðnættis að staðartíma til að vinna að endurnýjun lagana. VÍSIR/AFP
Öldungadeild bandaríska þingsins kom saman í dag til að ræða endurnýjun laga sem gera þarlendum löggæslustofnunum kleift að safna víðtækum upplýsingum um bandaríska ríkisborgara og fyrirtæki þeirra.

Lögin eru lykilþáttur í hinum umdeildu Patriot Act-lögum og takist þinginu ekki að endurnýja þau áður en þau falla úr gildi að miðnætti að staðartíma er ljóst að þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, þarf að draga svo um nemur úr starfsemi sinni.

Verði þau ekki endurnýjuð munu allar símaupplýsingar færast aftur í hendur símafyrirtækjanna og NSA mun því þurfa dómsúrskurð í hvert sinn sem stofnunin hyggst nýta sér þau gögn sem þær kunna að geyma. Ennfremur munu hlerunarheimildir stofnunarinnar minnka sem og úrræði hennar til að nálgast persónuupplýsingar bandarískra þegna með öðrum leiðum.

Repúblikaninn Rand PaulMYND/TWITTER
The Patriot Act voru sett á í kjölfar hryðjuverkaárásanna 11. september árið 2001 af þáverandi forseta bandaríkjanna, George Bush. Þau hafa löngum verið umdeild vegna þeirra umfangsmiklu heimilda sem þau veita bandarískum stjórnvöldum til að hafa eftirlit með þegnum sínum og eru þau almennt talin fórna mannréttindum á altari aukins þjóðaröryggis.

Frjálshyggjumenn á bandaríska þinginu vilja afnema lögin með öllu og fer öldungardeildarþingmaðurinn Rand Paul þar fremstur í flokki.

Hann hefur lýst því opinberlega að hann muni gera hvað sem í hans valdi stendur svo að lögin renni út en hann telur þau stangast á við stjórnarskrá landsins.

Þrátt fyrir það er fjöldi annarra þingmanna sem telur mikla hættu geta skapast verði lögin ekki endurnýjuð.

John Boehner, forseti þingins, sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann hvatti þingmenn til að vinna að áframhaldandi nýtingu lagaákvæðsins á þeim forsendum að fjöldi hryðjuverkasamtaka; Al Qaeda og Íslamska ríkið þeirra á meðal, vinni daglega að árásum á bandaríska þegna. Lögin hafi til þessa komið í veg fyrir fjölda slíkra árása og áætlar Boehner að þau muni koma til með að gera það áfram verði þau endurnýjuð.


Tengdar fréttir

Þjóðverjar hleruðu síma Hillary Clinton

Þetta kemur fram í gögnum sem þýskur njósnari lét bandarísku leyniþjónustunni í té. Gögnin eru talin geta haft mikil áhrif á deilurnar sem nú standa yfir milli ríkjanna vegna víðtækra hlerana Öryggisstofnunar Bandaríkjanna.

Handtekinn grunaður um njósnir fyrir bandarísk yfirvöld

Starfsmaður þýsku leyniþjónustunnar sem var handtekinn fyrir helgi grunaður um njósnir fyrir bandarísk yfirvöld er talinn hafa njósnað um yfirstandandi úttekt þýska þjóðþingsins á eftirliti Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna á þýskum borgurum.

Kanslari í klípu vegna njósnamála

Vaxandi þrýstingur hefur verið á Angelu Merkel Þýskalandskanslara fyrir að hafa ekki komið hreint fram við kjósendur fyrir kosningarnar 2013. Verulega virðist reyna á stjórnarsamstarf Kristilegra demókrata og Sósíaldemókrata vegna þessa.

Fylgdust með farsímanotkun milljarða manna

Bandaríska þjóðaröryggisstofnunin, NSA, og sú breska, GCHQ, brutust inn í kerfi hollenska fyrirtækisins Gemalto sem er stærsti framleiðandi símkorta í heiminum.

Gagnasöfnun NSA sögð stjórnarskárbrot

Bandarískir eftirlitsaðilar hafa lýst yfir áhyggjum af gagnasöfnun þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna, NSA, þar sem gengið sé lengra en heimilt er samkvæmt stjórnarskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×