Innlent

Klúbburinn Geysir hlýtur Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins

Bjarki Ármannsson skrifar
Klúbburinn Geysir með verðlaunagrip sinn og ávísun.
Klúbburinn Geysir með verðlaunagrip sinn og ávísun. Vísir/Geysir
Pollapönkarar voru verðlaunaðir fyrir boðskap sinn.Vísir/Stefán
Klúbburinn Geysir hlaut aðalverðlaun Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins við hátíðlega athöfn á hótelinu Nordica í dag. Ólafur Ragnar Grímsson forseti veitti þeim verðlaunin og Ari Edwald, forstjóri 365, afhenti þeim ávísun upp á 1,2 milljónir króna. Þetta er í níunda sinn sem Samfélagsverðlaunin eru veitt.

Klúbburinn hlaut verðlaunin fyrir að hafa síðustu fimmtán ár hjálpað þeim sem eiga við geðræn vandamál að stríða. Meðal annars kemur hópurinn meðlimum sínum í tímatakmörkuð reynslustörf í gegnum verkefnið Ráðning til reynslu, eða RTR. 

Aðrir sem voru útnefndir til Samfélagsverðlaunanna:

Kiwani-hreyfingin á Íslandi

Hjálparsími Rauða Krossins

Hvunndagshetja

Sigurður Hallvarðsson er Hvunndagshetja ársins fyrir að vera öðrum góð fyrirmynd þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Hann safnaði milljónum króna til styrktar Ljóssins við Langholtsveg með áheitagöngu í roki og rigningu frá Hveragerði til Reykjavíkur. Einnig safnaði hann peningum til kaupa á sjónvörpum fyrir langveik börn sem dvelja í Rjóðrinu þegar hann var í hvíldarinnlögn á Líknardeildinni nú nýverið.

Aðrir sem voru tilnefndir í þessum flokki:



Guðjón Hólm Gunnarsson og Sigurður Már Sigmarsson

Hafdís Ýr Birkisdóttir

„Þú bætir þessu svo bara í safnið,“ sagði forseti þegar hann rétti Ómari verðlaunagrip sinn.Vísir/Stefán
Frá kynslóð til kynslóðar

Í flokkinum Frá kynslóð til kynslóðar hlutu Samfélagsverðlaunin Móðurmál, samtök um tvítyngi. Samtökin styðja við og efla móðurmálskunnáttu barna með íslensku sem annað mál. Hópurinn sem stendur að samtökunum kennir launalaust einu sinni í viku og aðstoðar börn á ólíkum aldri við að viðhalda móðurmáli sínu. 



Aðrir tilnefndir í þessum flokki:


Ómar Ragnarsson

Gunnar Vignir Guðmundsson

Til atlögu gegn fordómum

Það voru svo Eurovision-fararnir í hljómsveitinni Pollapönk sem hlutu Samfélagsverðlaunin í flokkinum Til atlögu gegn fordómum. Hljómsveitin hlaut verðlaunin fyrir að breiða út jákvæðum boðskap til barna í textum sínum.

Aðrir tilnefndir í þessum flokki:

Alma Rut Lindudóttir

Félagasamtökin Erindi og feðginin Selma Björk og Hermann Jónsson

Jón Stefánsson kórstjóri hefur starfað við Langholtskirkju í hálfa öld.Vísir/Stefán
Heiðursverðlaun

Heiðursverðlaun Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins hlotnuðust að þessu sinni Jóni Stefánssyni, organista og kórstjóra við Langholtskirkju.

Verðlaunin eru veitt fyrir ævistarf viðkomandi, að þessu sinni ómetanlegt ævistarf í þágu tónlistar. Jón fagnar fimmtíu ára starfsafmæli við kirkjuna um þessar mundir og hefur á þeim tíma átt stóran þátt í að byggja upp kórastarf á landinu og opnað heim tónlistar fyrir fjölmörgum börnum og unglingum. Þess má geta að Jón hlaut Samfélagsverðlaunin í flokkinum Frá kynslóð til kynslóðar árið 2011. 

Um verðlaunin



Tilnefningar til Samfélagsverðlaunanna eru fengnar frá lesendum Fréttablaðsins og í ár bárust á fjórða hundrað tilnefninga. Dómnefnd skipuðu þau Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar og Þorsteinn J. Vilhjálmsson fjölmiðlamaður. Verkefnastjóri var Einar Skúlason.

Aðalverðlaun Samfélagsverðlaunanna er 1,2 milljónir króna og aðrir verðlaunahafar hljóta 49 tommu United sjónvarp frá Sjónvarpsmiðstöðinni auk verðlaunagripa frá Ásgarði í Mosfellsbæ. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×