Fótbolti

Klopp vill ekki að rúta Rómverja verði grýtt

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stuðningsmenn Liverpool voru ekki beint til fyrirmyndar síðast.
Stuðningsmenn Liverpool voru ekki beint til fyrirmyndar síðast. vísir/getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, vill að stuðningsmenn félagsins sýni liði Roma virðingu er það mætir til leiks á Anfield í kvöld.

Það er eflaust enginn búinn að gleyma því hvernig stuðningsmenn Liverpool grýttu rútu Man. City í síðustu umferð í Meistaradeildinni.

„Þetta er frábært félag sem er þekkt fyrir frábæra stemningu. Við þurfum ekki að kasta hlutum,“ sagði Klopp en lögreglumenn slösuðust í látunum síðast.

„Inn á vellinum veriði endilega með betri stemningu en síðast en fyrir utan völlinn verðið þið að sýna virðingu. Við getum sýnt fólki hversu frábært fólk býr í Liverpool og það á 20 mínútum fyrir leik fyrir alla í heiminum.“

Öryggisgæslan í kvöld verður meiri en síðast út af látunum sem voru þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×