Enski boltinn

Klopp fær frasakennslu frá einum níu ára | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jürgen Klopp lærði ýmislegt af Isaac.
Jürgen Klopp lærði ýmislegt af Isaac. mynd/skjáskot
Isaac, níu ára gamall stuðningsmaður Liverpool, fékk tækifæri til að hitta Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra liðsins, og spyrja hann spjörunum úr.

Viðtalið var hluti af Kop Kids, virkilega skemmtilegum dagskrárlið á sjónvarpsstöð Liverpool þar sem ungir stuðningsmenn liðsins fá tækifæri til að hitta hetjurnar sínar.

Klopp fékk frasakennslu í „Scouse“-fræðunum og lærði hvað það þýðir að vera „Gorra Cob on“ og „My Head Chocka“.

Þjóðverjinn opnaði sig einnig og sagði frá sínum helstu styrkleikum og veikleikum, en hans helsti veikleiki segir Klopp vera óþolinmæði. Hann er þolinmóður í fótboltanum en ekki utan hans.

Uppáhaldshljómsveit Klopps er að sjálfsögðu Bítlarnir, en þá er hann einnig aðdáandi Genesis og rokkhljómsveitarinnar KISS.

Þetta bráðskemmtilega viðtal má sjá í spilaranum hér að neðan.

Full video: Kop Kids with Jürgen Klopp

Jürgen Klopp talks Scouse phrases, favourite music and more with nine-year-old #LFC fan Isaac in his most revealing interview yet. Here's the full video! #LFCKopKids

Posted by Liverpool FC on Wednesday, November 25, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×