Fótbolti

Klopp: Vandamálin fylgja stórstjörnunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jürgen Klopp, þjálfari þýska liðsins Borussia Dortmund.
Jürgen Klopp, þjálfari þýska liðsins Borussia Dortmund. Mynd/NordicPhotos/Getty
Jürgen Klopp, þjálfari þýska liðsins Borussia Dortmund, er ekkert að svekkja sig yfir því að þurfa alltaf að horfa á eftir sínum bestu leikmönnum. Hann var spurður út í þetta í viðtali í ítalska blaðinu Repubblica fyrir leik Dortmund og Napoli í Meistaradeildinni sem fer fram í kvöld.

„Ég tæki fagnandi við leikmanni eins og Ibrahimovic. Ég er hrifinn af klikkuðum leikmönnum. Það er nú samt þannig á leikmannamarkaðnum að þú þarft að hafa skýra stefnu og það er ekki nóg að eiga pening," segir Jürgen Klopp.

„Það væri frábært að geta náð í full af stjörnuleikmönnum en það fylgja því vandamál að vera kominn með 25 súperstjörnur í sama lið. Þá væri maður alltaf í vandræðum með að halda öllum sáttum. Þetta er líka ekki stíllinn hjá Borussia. Um leið það líka ástæðan fyrir því af hverju ég er réttur maður á réttum stað," sagði hinn litríki Jürgen Klopp.

Jürgen Klopp tók við Borussia Dortmund liðinu árið 2008 og liðið varð þýskur meistari 2011 og 2012 auk þess að vinna tvöfalt seinna árið.  Hann hefur oft verið orðaður við stærri klúbba en í haust skrifaði Klopp undir nýjan samning til ársins 2018.

Borussia Dortmund tekur á móti Napoli í Meistaradeildinni í kvöld og verður að vinna til að eiga möguleika á því að komast í sextán liða úrslitin. Napoli er með þriggja stiga forskot þegar tvær umferðir eru eftir.

„Við erum vanir því að þurfa að vinna. Napoli er svipað af styrkleika og við. Þeir unnu okkur í fyrri leiknum en það var ekki venjulegt kvöld því úrslitin réðust þá á tveimur atvikum, þegar Weidenfeller fékk rautt og þegar ég fékk rautt spjald," sagði Klopp.

Mynd/NordicPhotos/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×