Enski boltinn

Klopp: Ég verð eflaust ánægður með þessi úrslit á morgun

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jurgen Klopp á hliðarlínunni í dag.
Jurgen Klopp á hliðarlínunni í dag. Vísir/getty
„Það héldu margir að United myndi bara rúlla yfir okkur í dag. Þeir hafa verið í hörkuformi og allt að falla með þeim,“ segir Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, eftir jafnteflið við Manchester United í dag. Liðið gerðu 1-1 jafntefli á Old Trafford.

„Við vitum alveg hver okkar vandamál eru og mér fannst gaman að sjá liðið spila svona í dag. Við þurftum að sýna hugrekki og reyna skapa okkur færi og vera hættulegir. Við skoruðum mark og þetta leit vel út.“ Hann segir að liðið hafi verið í vandræðum með háu boltanum á Zlatan og Fellaini undir lokin.

„Ég var að vonast eftir smá heppni en það gekk ekki eftir. Ég verð eflaust sáttur við þessi úrslit á morgun. Við mættum hingað til að vinna og þess vegna erum við ekki fullkomlega sáttir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×