Viðskipti erlent

Klofningur í ríkisstjórn Írlands vegna Apple-úrskurðar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sektin er ein sú stærsta í sögunni.
Sektin er ein sú stærsta í sögunni. Vísir/Getty
Ríkisstjórn Írlands er klofin yfir því hvort áfrýja eigi úrskurði Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að Apple skuli greiða yfirvöldum í Írlandi milljarða evra vegna ógreiddra skatta.

Fundað var um áfrýjun á ríkisstjórnar fundi og kom þar í ljós að stjórnarmeðlimir Sjálfstæðisfylkingarinnar gátu ekki stutt tillögu samstarfslokksins Fine Gael um að áfrýja úrskurðinum. Fundað verður síðar í vikunni svo komast megi að sameiginlegri niðurstöðu.

Framkvæmdastjórn ESB úrskurðaði í gær að skattaívilnanir Apple á Írlandi teldust vera ólögleg ríkisaðstoð sem Apple nyti umfram önnur fyrirtæki. Var Apple skipað að greiða írskum yfirvöldum 13 milljarða evra, um 1700 milljarðar króna, vegna ógreiddra skatta.

Mögulegt þykir að heildarupphæðin sem Apple þarf að greiða til baka verði nær 19 milljörðum evra, um 2500 milljónir króna, þegar áfallnir vextir eru teknir með í reikninginn.

Apple hefur þegar tilkynnt að fyrirtækið muni áfrýja úrskurðinum og Michael Noonan, fjármálaráðherra Írlands, tilkynnti sama dag að, líklega myndi írska ríkisstjórnin gera slíkt hið sama. Nú er hins vegar óvíst að samstaða náist um það í ríkisstjórn Írlands.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×