Erlent

Klipptu kvenleiðtoga út úr göngunni í París

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Forsíða dagblaðsins en inn á myndina vantar til dæmis Angelu Merkel sem gekk við hlið Francois Hollande, Frakklandsforseta.
Forsíða dagblaðsins en inn á myndina vantar til dæmis Angelu Merkel sem gekk við hlið Francois Hollande, Frakklandsforseta.
Ísraelska dagblaðið The Announcer birti í gær á forsíðu sinni mynd úr samstöðugöngunni sem haldin var í París á sunnudag.

Á myndinni má sjá þó nokkra af þeim þjóðarleiðtogum heimsins sem tóku þátt í göngunni en inn á myndina vantar Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, Federicu Mogherini, æðsta talsmann utanríkis-og öryggisstefnu ESB og Anne Hidalgo, borgarstjóra í París.

Þær er af einhverjum ástæðum búið að klippa út af myndinni með myndvinnsluforriti og þá er búið að „blörra“ andlit Simonettu Sommaruga, forseta Sviss.

Mynd frá göngunni á sunnudaginn þar sem ekki er búið að klippa kvenleiðtogana út.Vísir/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×