Sport

Klippti af þumlinum með skærum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brady er alltaf til í góða Bolamynd.
Brady er alltaf til í góða Bolamynd. vísir/getty
Tom Brady er frábær í amerískum fótbolta en hann er ekki eins sleipur með skærin.

Brady átti að spila með liði sínu, New England Patriots, gegn Chicago Bears en gat það ekki þar sem hann slasaði sig með skærin fyrir leik.

Brady var að reyna að klippa eitthvað af skónum sínum fyrir leik og það heppnaðist ekki betur en svo að hann klippti af öðrum þumlinum.

Brady hvíldi og Jimmy Garoppolo og Jacoby Brissett léku í hans stað. Garoppolo þarf á æfingu að halda því hann verður í liðinu fyrstu fjóra leikina á tímabilinu þar sem Brady er í banni.

NFL

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×