Enski boltinn

Klikkaði eftir guðdómlega sendingu Henry

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Thierry Henry í leiknum um helgina.
Thierry Henry í leiknum um helgina. Vísir/Getty
Það voru mörk skemmtileg tilþrif sem sáust í góðgerðarleik Liverpool um helgina en þar stilltu þeir Steven Gerrard og Jamie Carragher upp hvoru sínu stjörnuliði.

Margir gamlir samherjar og andstæðingar þeirra voru saman komnir í leiknum en Thierry Henry, einn besti sóknarmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi og fyrrum leikmaður Arsenal, var í liði Gerrard.

Það var einnig Hollendingurinn Ryan Babel sem fór illa að ráði sínu þegar hann skaut framhjá úr dauðafæri eftir ótrúlega sendingu Henry, eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.

Thierry Henry, ladies and gentlemen. #LFCAllStars

Posted by Liverpool FC on Monday, March 30, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×