Enski boltinn

Klaufaleg og umdeild mörk í jafntefli Southampton og Tottenham | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Southampton-menn fagna fyrsta marki leiksins.
Southampton-menn fagna fyrsta marki leiksins. vísir/getty
Southampton og Tottenham skildu jöfn, 2-2, í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Graziano Pellé kom Dýrlingunum tvisvar yfir en Erik Lamela og Nacer Chadli jöfnuðu fyrir Tottenham.

Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.

Pellé skoraði fyrra mark sitt á 29. mínútu með skoti af stuttu færi eftir mikinn vandræðagang í vörn Tottenham.

Erik Lamela jafnaði metin tveimur mínútum fyrir hálfleik þegar hann virtist slá boltann í netið með hendinni. Dómari leiksins sá hins vegar ekkert athugavert og dæmdi markið gilt.

Pellé kom Dýrlingunum aftur yfir á 65. mínútum með góðum skalla eftir fyrirgjöf Shane Long frá hægri. Þetta var 11. deildarmark Ítalans í vetur.

Forystan entist þó aðeins í fimm mínútur því á 70. mínútu jafnaði Chadli metin í 2-2 eftir að hafa fengið sendingu inn í vítateiginn frá Eric Dier.

Tottenham og Southampton sitja í 5. og 6. sæti deildarinnar en aðeins einu stigi munar á liðunum. Spurs er með 58 stig en Southampton 57.

Pelle kemur Southampton yfir Lamela jafnar metin Pelle skorar sitt annað mark Chadli jafnar í 2-2



Fleiri fréttir

Sjá meira


×