Menning

Klassík í Bláu kirkjunni

Tónleikarnir fara fram í Seyðisfjarðarkirkju á miðvikudagskvöldum og hefjast klukkan 20.30.
Tónleikarnir fara fram í Seyðisfjarðarkirkju á miðvikudagskvöldum og hefjast klukkan 20.30.
Sautjánda tónleikasumarið í Bláu kirkjunni er nú í fullum gangi og að vanda er boðið upp á vikulega tónleika með fjölbreyttri tónlist. Miðvikudagskvöldið 16. júlí flytja þau Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari og Richard Simms píanóleikari klassíska tónlist fyrir fiðlu og píanó.

Tónleikaröðin hóf göngu sína árið 1998 að frumkvæði Muff Worden heitinnar og Sigurðar Jónssonar og hefur starfað sleitulaust síðan og er mikilvægur hluti af hinu blómlega menningarlífi sem einkennir Seyðisfjörð. Í gegnum tíðina hafa margir af helstu tónlistarmönnum landsins komið þar fram auk erlendra gesta.



Tónleikarnir fara fram í Seyðisfjarðarkirkju á miðvikudagskvöldum og hefjast klukkan 20.30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×