Innlent

Klara spáði rétt fyrir um gosið: „Ég er bara næm“

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Klara Tryggvadóttir virðist hafa haft rétt fyrir sér.
Klara Tryggvadóttir virðist hafa haft rétt fyrir sér.
Klara Tryggvadóttir, frá Vestmannaeyjum, virðist hafa haft rétt fyrir sér þegar hún spáði því að gosið sem beðið hefur verið eftir myndi hefjast í dag. Klara var í viðtali á Pressunni í vikunni og þar sagði hún að hana hefði dreymt að gosið myndi hefjast í dag og nefndi þar tvær tímasetningar, klukkan 7 að morgni eða 11 að kvöldi til. Klara er sögð mjög berdreymin og segist áður hafa dreymt um náttúruhamfarir; draumar sem svo hafi orðið að veruleika.

Í samtali við Vísi segir Klara að svo virðist sem að draumurinn sé að rætast, þó svo að tímasetningin hafi ekki alveg stemmt. „Já, þetta virðist ætla að hitta svona á. Tímasetningin er þó óljós, enda er ekki víst að gosið sé alveg hafið, það er erfitt að segja til um það.“

En hvernig koma þessar upplýsingar til þín í draumi?

„Mig dreymdi gosið og svo dreymdi mig sama fólkið aftur og aftur alla nóttina. Þannig fékk ég tímasetningarnar. Ég hef óskað þess, þegar ég fer að sofa á kvöldin, að ég fái ekki svona upplýsingar, en ég virðist alltaf vera látin vita af svona atburðum.“

Klara segir frá því að hún hafi áður spáð fyrir um upphaf gosa og náttúruhamfara. „Mig dreymdi til dæmis gosið í Eyjum á sínum tíma. Þá var ég búin að segja öllum frá því en enginn hlustaði. Til dæmis sagði afi minn alltaf við mig „hættu þessu bulli stelpa, Helgafellið sefur.“ En svo eftir gosið sagði hann: „Ég hefði betur hlustað á þig stelpuskott.““ 

Hún segist einnig hafa spáð fyrir um gosið í Eyjafjallajökli, Suðurlandsskjálftana báða auk fleiri náttúruhamfara.

Klara segist ekki vita af hverju hún fær þessar upplýsingar til sín. „Ég hef ekki hugmynd um það. Ég er bara næm. Ég er hvorki miðill né spákona. Þetta bara kemur til mín. Ég kæri mig ekki mikið um þessar upplýsingar. Ég myndi frekar vilja vita havða tölur koma upp í lottóinu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×