Viðskipti innlent

Klakki selur þriggja milljarða hlut í VÍS

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Klakki ehf., sem áður hét Exista, hefur selt allan hlut sinn í tryggingafélaginu VÍS. Alls eru seldir liðlega 374 milljón hlutir og nemur heildarverðmæti þeirra rúmlega 3,1 milljarði króna.  

Einungis vika er liðin frá því að Klakki seldi 1,66 milljarðar króna hlut í VÍS og voru það lífeyrissjóðir sem keyptu hlutinn.


Helsta eign Klakka eftir söluna á hlutnum í VÍS er hlutur í Lýsingu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×