Heilsa

Klæjar þig í augun?

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Frjókornaofnæmi er hvimleitt og getur gert fólki lífið leitt á sumrin.

Þú gætir verið með frjókornaofnæmi ef að...

- þig klæjar í augun

- það rennur úr augunum á þér

- þú ert með langvarandi einkenni kvefs

- síendurtekin hnerr

- kláði í nefinu

- miklar andlitsgrettur

- stíflað nef

- nefrennsli

- astmaeinkenni

- er fædd/-ur að sumri til þegar frjókorn eru í hámarki

Hvað er til ráða?

Fyrst gæti verið gott að láta greina það hjá lækni með húðprófi.

Það er ekki hægt að lækna frjókornaofnæmi en það er hægt að halda niðri einkennum þess með því að takmarka viðveru við gróður eins og að slá ekki grasið og fækka gróðri í nánasta umhverfi. Þá er hægt að taka andhistamín lyf eða jafnvel sterlyf en slíkt skal ávallt gera í samráði við lækni.

Náttúrulegar lausnir eru einnig til þar sem hægt er að nota vítamín líkt og C-vítamín, B-5; meltingarensím, brómelín og jurtir eins og brenninetla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×