Lífið

Klæðir sig upp sem Amal Clooney á hrekkjavöku

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Spjallþáttadrottningin Ellen DeGeneres afhjúpaði hrekkjavökubúninginn sinn í þætti sínum fyrr í dag. Hún ákvað að vera mannréttindalögfræðingurinn Amal Clooney sem gekk að eiga stórleikarann George Clooney fyrir stuttu.

„Mér finnst gaman að hrekkjavöku því það er eini tími ársins sem maður getur klætt sig upp sem hver sem er og látið eins og einhver sem maður gæti aldrei verið í raun. Fyrir mig er það að vera gift karlmanni,“ sagði Ellen í þætti sínum.

„Þið vitið að ég lagið mikið á mig fyrir ykkur. Ég var ekki einu sinni í brúðarkjól í mínu eigin brúðkaupi. Þetta gæti verið minn kynþokkafyllsti búningur til þessa. Af því að hvað er kynþokkafyllra en kona með heila?“ bætti Ellen við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×