Matur

Kjúklingur í satay-sósu - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Mynd/Dröfn Vilhjálmsdóttir

Dröfn Vilhjálmsdóttir heldur úti matarblogginu Eldhússögur og deilir uppskrift að einföldum kjúklingarétti.

Kjúklingur í satay-sósu með sætkartöflumús

700 g kjúklingur (ég notaði úrbeinuð læri frá Rose Poultry), skorinn í bita smjör eða olía til steikingar

1 dós satay-sósa (440 g) 

1 stór rauð paprika, skorin í bita

1 meðalstór rauðlaukur, saxaður smátt

100 g ferskt spínat

150 g fetaostur í olíu

ca. 1 dl salthnetur, grófsaxaðar

Laukur og paprika steikt á pönnu þar til laukurinn er orðin mjúkur. Þá er kjúklingnum bætt út á pönnuna og hann steiktur þar til bitarnir hafa brúnast. Því næst er sósunni bætt út á pönnuna og látið malla í 15 mínútur. Þá er spínatinu hrært út í og látið malla í 5 mínútur til viðbótar. Áður en rétturinn er borinn fram er fetaosti (án olíunnar) og salthnetum dreift yfir. Borið fram með sætkartöflumús.

Sætkartöflumús

ca. 800 g sætar kartöflur

3 msk. smjör

salt & pipar

chili-flögur (ég notaði chili explosion krydd)

Sætu kartöflurnar eru afhýddar og skornar í bita. Bitarnir eru því næst soðnir í 10-15 mínútur eða þar til kartöflurnar eru soðnar í gegn. Þá eru þær stappaðar saman við smjör og krydd í potti við lágan hita.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×