Matur

Kjúklingasúpa með sólþurrkuðum tómötum og kínóa

Rikka skrifar
visir/RósaGuðbjarts

Kjúklingasúpa með sólþurrkuðum tómötum og kínóa

Það slær enginn hendinni á móti góðri kjúklingasúpu. Þessi súpa er mjög einföld og fljótleg í undirbúningi. Hér eru kínóagrjón (quinoa), sem eru reyndar frætegund, notuð í súpuna. Þau hafa slegið rækilega í gegn í heilsubransanum undanfarin ár. Fræin eru afar næringarrík, meðal annars full af próteini, kalki og járni og svo eru þau án glúteins sem margir vilja sleppa úr sínu mataræði. Kínóa er stökkt undir tönn og er með mildan hnetukeim. Það hentar mjög vel í súpur og aðra pottrétti. Í þessa súpu er tilvalið að nota afgang af kjúklingi og ef þörf er á er einfalt að auka kínóamagnið til að gera súpuna fyllri.

1 msk. ólífuolía eða smjör

1 rauðlaukur, sneiddur

1 gulur laukur, sneiddur

3 msk. rautt pestó

1 líter kjúklingasoð

500-600 g eldaður kjúklingur, niðurrifinn

2 msk. sólþurrkaðir tómatar, smátt saxaðir

2 dl kínóa, soðið

handfylli fersk steinselja, gróft söxuð

Meðlæti og skraut

ristaðar snittubrauðssneiðar

fersk steinselja

1. Mýkið rauðlauk og lauk í ólífuolíu eða smjöri í potti við vægan hita.

2. Blandið pestói saman við og bætið síðan kjúklingasoðið út í.

3. Látið suðuna koma upp, lækkið hitann og bætið kjúkling og sólþurrkuðum tómötum út í þar til kjúklingurinn hefur hitnað í gegn.

4. Bætið loks soðnu kínóa og ferskri steinselju saman við.

5. Berið fram með ristuðu snittubrauði.

Kínóa - aðferð

Mikilvægt er að skola grjónin/fræin fyrir eldun. Hellið köldu vatni yfir þau, veltið þeim aðeins upp úr vatninu. Skellið síðan í sigti og látið renna vel af þeim. Setjið síðan í pott með vatni í hlutföllunum 1 á móti 2, t.d. 1 dl ósoðin grjón og 2 dl vatn. Setjið örlítið salt í pottinn. Látið suðuna koma upp, lækkið hitann og látið malla í um 10 mínútur við lagan hita. Slökkvið undir og látið grjónin standa í pottinum með lokinu á í nokkrar mínútur þar til þau hafa drukkið í sig allan vökvann. Þá eru þau tilbúin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×