Matur

Kjúklingasalat Evu Laufeyjar

Fljótlegt og gómsætt satay-kjúklingasalat.
Fljótlegt og gómsætt satay-kjúklingasalat.

Fyrsti þáttur af sjónvarpsþáttaseríu Evu Laufeyjar Kjaran, Matargleði Evu, fór í loftið í gær á Stöð 2. Í þáttunum verður farið um víðan völl og eldaður girnilegur matur fyrir öll tækifæri.

Í fyrsta þættinum einbeitti hún sér að hollari réttum og bjó til þetta girnilega salat sem hún vill kalla vinkonusalat.

„Ég veit ekki hversu oft ég hef boðið upp á þetta salat, sem að mínu mati er besta salat sem ég hef smakkað. Ég fékk það fyrst hjá vinkonu minni, henni Fríðu, fyrir nokkrum árum og kolféll fyrir því en ég hef prófað mig áfram með það og breytt því smávegis. Salatið er ansi oft á boðstólum þegar ég á von á vinkonum í mat og því tengi ég það við þær og kalla það vinkonusalatið góða,“ segir Eva. 

Í næsta þætti mun Eva Laufey matreiða dásamlega fiskisúpu og einfalt brauð sem allir geta leikið eftir að baka auk þess sem ómótstæðilegur eftirréttur verður á boðstólum.

Matargleði Evu er á fimmtudagskvöldum klukkan 20.10 á Stöð 2.

Ljúffeng sósa með austurlensku yfirbragði

½-1 dl vatn

3 msk. smátt saxaður kóríander

1 tsk. Sambal oelek, chili mauk

4 msk. gróft hnetusmjör

2 cm rifið engifer

1 hvítlauksrif

1 límóna

Salt og nýmalaður pipar

Blandið öllu vel saman í matvinnsluvél, smakkið til með salti og pipar. Sósan er tilbúin þegar áferðin er orðin eins og þú vilt hafa hana.

Kjúklingasalat

700 g kjúklingakjöt, helst bringur

1 skammtur satay-sósa

200 g kúskús

Spínat, einn poki

1 askja kirsuberjatómatar

2 lárperur

1 mangó

Kasjúhnetur, ristaðar

150 g fetaostur

Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið á pönnu. Hellið satay-sósunni yfir og látið malla þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.

Sjóðið kúskús eftir leiðbeiningum á pakka. Skerið kirsuberjatómata og lárperur í sneiðar og mangó í litla bita.

Setjið spínat í botninn á fati. Dreifið kúskúsinu yfir og setjið kjúklinginn yfir kúskúsið. Stráið kirsuberjatómötum, lárperum, mangói og fetaosti, ásamt smá af olíunni, yfir. Dreifið að lokum ristuðum kasjúhnetum yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×