Enski boltinn

Kjúklinganaggi sem lítur út eins og Joe Allen | Mynd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Joe Allen.
Joe Allen. vísir/getty
Joe Allen, leikmaður Liverpool, er að spila frábærlega þessa dagana og andlit hans er víða.

Meira að segja á kjúklinganagga sem einhver stuðningsmaður Liverpool keypti á dögunum. Er hann leit á naggann sá hann bara andlit Allen. Það gera fleiri.

Ekki fylgir sögunni hvort búið sé að borða naggann eða hvort hann er kominn í kassa einhvers staðar. Í það minnsta er nagginn kominn í heimsfréttirnar og það skiljanlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×