Kjósendur hugsi sinn gang 15. maí 2013 10:02 Steingrímur J. Sigfússon er ekki sáttur við íslenska kjósendur Mynd/ Vísir
Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður Vinstri Grænna og starfandi atvinnuvegaráðherra, er ekki par sáttur við íslenska kjósendur ef marka má grein sem Financial Times birti eftir Steingrím í gær. Í greininni segir Steingrímur meðal annars: „Úrslitin á Íslandi gefa tilefni til sjálfskoðunar, ekki bara hjá stjórnmálamönnum heldur líka hjá kjósendum. Eru væntingar okkar raunhæfar?" Steingrímur segir úrslit kosningana ekki helgast af því að illa hafi tekist til á kjörtímabilinu heldur hafi kjósendur, sem þrái lífsgæði bóluhagkerfisins, gert of miklar væntingar til stjórnvalda eftir efnahagshrunið 2008. Steingrímur telur kjósendum hafa yfirsést hversu vel hafi í raun tekist til á kjörtímabilinu og segir að tekist hafi að halda í hina norrænu velferð sem hafi vakið heimsathygli.Kjósendur of óþolinmóðir Þá gerir Steingrímur að því skóna að íslenskir kjósendur, og reyndar evrópskir kjósendur almennt, séu of óþolinmóðir og rétt hefði verið að gefa fráfarandi stjórnvöldum lengri tíma við stjórnvölinn. Steingrímur segir úrslit kosninganna vera ótrúleg og bendi til þess að kjósendur þurfi að hugsa sinn gang. Steingrímur segir kjósendur hafa keypt hina margkveðnu tuggu um að koma skyldi efnahagslífinu af stað með lægri sköttum og minna regluverki. Þannig hafi kjósendur gert þau mistök að falla fyrir „skammtímaneyslu" í stað „stöðugleika til langs tíma." Í niðurlagi greinarinnar veltir Steingrímur því fyrir sér hvort stjórnvöldum sé hreinlega mögulegt að halda í völd nógu lengi til að koma þjóðum úr efnahagsörðugleikum og segir: „Er eina leiðin til að mæta hinni óseðjandi þörf kjósenda fyrir hagvöxt að byggja hagkerfi á kviksyndi?"
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira