Lífið

Kjóllinn klikkaði í miðju atriði - MYNDBAND

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarkonurnar Ariana Grande, Jessie J og Nicki Minaj opnuðu MTV Video Music-verðlaunahátíðina í gærkvöldi með glæsibrag. 

Stöllurnar sungu nýja lagið sitt Bang Bang en Nicki greyið lenti í óskemmtilegu atviki þegar svartur kjóll sem hún klæddist rifnaði.

Nicki er greinilega alvön öllu mögulegu þegar kemur að því að troða upp og náði að halda kjólnum saman með fingrunum á meðan hún söng eins og engill.

Atvikið má sjá í meðfylgjandi myndbandi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×