Viðskipti innlent

Kjartan ráðinn forstöðumaður hjá Gagnaveitu Reykjavíkur

Kjartan, sem er 37 ára, hefur starfað hjá Gagnaveitunni frá árinu 2005.
Kjartan, sem er 37 ára, hefur starfað hjá Gagnaveitunni frá árinu 2005.
Kjartan Ari Jónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Ljósleiðaradeildar Gagnaveitu Reykjavíkur.

Kjartan, sem er 37 ára, hefur starfað hjá Gagnaveitunni frá árinu 2005. Hann var áður uppbyggingarstjóri Ljósleiðarans, háhraða gagnaflutningsnetsins sem GR byggir og rekur. Kjartan er með M.Sc.-gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskólanum í Álaborg.

Gagnaveita Reykjavíkur vinnur nú að ljósleiðaravæðingu í Garðabæ, Kópavogi og Hafnarfirði. Öll heimili í Reykjavík voru orðin tengd Ljósleiðaranum 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×