Fótbolti

Kjartan Henry með bæði mörk Horsens í jafntefli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kjartan Henry í leik með KR.
Kjartan Henry í leik með KR. vísir/daníel
Kjartan Henry Finnbogason heldur áfram að skora fyrir AC Horsens í dönsku B-deildinni í knattspyrnu í dag. Kjartan skoraði bæði mörk Horsens í 2-2 jafntefli gegn Brønshøj.

KR-ingurinn kom Horsens yfir af vítapunktinum eftir stundarfjórðung, en Oke Akpoveta jafnaði metin á 63. mínútu fyrir Brønshøj.

Tólf mínútum síðar kom Kjartan Henry Horsens aftur yfir, en Alexander Lazarevic jafnaði svo fyrir Brønshøj tveimur mínútum fyrir leikslok.

Horsens er í sjötat sæti deildarinnar, en Brønshøj er í því neðsta. Kjartan hefur skorað ellefu mörk á tímabilinu þrátt fyrir að hafa glímt við meiðsli á tímapunkti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×