Fótbolti

Kjartan Henry gulltryggði sigur Horsens

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kjartan Henry er kominn með sex mörk í dönsku B-deildinni.
Kjartan Henry er kominn með sex mörk í dönsku B-deildinni. mynd/facebook-síða horsens
Kjartan Henry Finnbogason skoraði seinna mark Horsens sem vann 0-2 sigur á Skive í dönsku B-deildinni í kvöld.

Þetta var fyrsti sigur Horsens eftir þrjú jafntefli í röð. Liðið er í 3. sæti deildarinnar með 21 stig, einu stigi á eftir toppliði Lyngby. Þrjú efstu liðin fara upp í úrvalsdeildina.

Þetta var sjötta mark Kjartans í 11 deildarleikjum á tímabilinu. Hann skoraði 11 mörk í 24 deildarleikjum með Horsens í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×