Innlent

Kjaraviðræður enn strand þrátt fyrir tugi sáttafunda

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Starfssemi álversins stöðvast ef af verkfallinu verður.
Starfssemi álversins stöðvast ef af verkfallinu verður. vísir/gva

Kjaraviðræður starfsmanna álversins í Straumsvík og stjórnenda fyrirtækisins eru enn strand þar sem stjórnendurnir neita að víkja frá kröfum sinni um að heimilt verði að bjóða út fleiri störf til verktöku. Rétt rúmir tveir sólarhringar eru í að verkfall starfsfólksins hefjist.

Fulltrúar starfsmanna álversins hafa átt hátt í þrjátíu samningafundi í hjá Ríkissáttasemjara síðustu mánuði með stjórnendum fyrirtækisins í von um að leysa kjaradeilu þeirra. Krafa starfsmannanna hefur verið sú að fá sömu launahækkanir og hafa orðið á almennum vinnumarkaði. Svo virðist sem að samninganefndirnar hafi að mestu leyti náð saman um launamál og sérkröfur.

Guðmundur Ragnarssonvísir/anton brink

Gerð nýrra kjarasamninga strandar hins vegar á kröfu stjórnenda fyrirtækisins um að fá heimild til að bjóða út fleiri störf til verktöku. Það segja starfsmennirnir ekki koma til greina. Guðmundur Ragnarsson, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna, segir að um allt að eitt hundrað störf geti verið að ræða sem sé nokkuð stór hluti af þrjú hundruð og fimmtíu manna starfsmannahópi. Hann segir það óskiljanlegt að fyrirtækið haldi svo kröfunni til streitu.

„Þetta er eitthvað prinsipp sem að þeir hafa að vísu verið að reyna að ná bara um allan heim í sínum verksmiðjum þannig að ég veit ekki hvað það er. Svo er náttúrulega hin hliðin á þessu það er það að maður er svona farinn að hugsa það meira og meira, að það sé verið að reyna að búa til gaffal á íslensk stjórnvöld og jafnvel Landsvirkjun, um það að þeir fái lækkun á raforkusamningnum sem er talsvert dýrari heldur en hjá hinum álfyrirtækjunum,“ segir Guðmundur

Hann segir gjörsamlega óskiljanlegt að einhverjum detti það í hug að fyrirtæki, sem velti jafn mikið og álverið gerir, ætli sér að loka heilli verksmiðju til að spara þrjátíu til fimmtíu milljónir. „Það er þá orðinn skrýtinn allur þessi bisness. Ég verð að segja það,“ segir Guðmundur.

Samninganefndirnar hittast á fundi í Karphúsinu á morgun. Verkfall starfsmanna álversins hefst svo á miðnætti á þriðjudaginn ef nýir kjarasamningar verða ekki undirritaðir fyrir þann tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×