Innlent

Kjarasamningur Sjómannafélags Íslands og SFS undirritaður

Atli Ísleifsson skrifar
Verkfall sjómanna skall á síðastliðinn fimmtudag.
Verkfall sjómanna skall á síðastliðinn fimmtudag. vísir/gva
Fulltrúar Sjómannafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi undirrituðu kjarasamning síðdegis í dag.

Verkfalli félagsmanna í félaginu hefur því verið frestað á meðan atkvæðagreiðsla um samninginn stendur yfir, en henni mun ljúka 14. desember.

Á Facebook-síðu Sjómannafélags Íslands segir að þær breytingar hafi verið gerðar á samningi að grein um slysa- og veikindabætur skipverja er felld úr gildi, ásamt því að breyting er gerð á grein um sektarákvæði. Samningurinn verður nú kynntur við komu og brottfarir skipa.

Verkfall sjómanna skall á síðastliðinn fimmtudag.

Sjómannafélag Grindavíkur á enn eftir að ná samningi við SFS.


Tengdar fréttir

„Staðan er svolítið snúin"

„Við skrifum ekki undir kjarasamning með skerðingu á veikindarétti til okkar manna," segir Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands




Fleiri fréttir

Sjá meira


×