Viðskipti innlent

Kjararáð lækkar laun bankastjóra Íslandsbanka um rúm 40 prósent

Anton Egilsson skrifar
Kjararáð lækkar laun Birnu Einarsdóttir, bankastjóri íslandsbanka,
Kjararáð lækkar laun Birnu Einarsdóttir, bankastjóri íslandsbanka, Vísir/GVA
Kjararáð birti í dag úrskurð um laun Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka. Samkvæmt honum munu árslaun Birnu lækka um rúm 40 prósent.

Samkvæmt úrskurðinum sem er frá 31. janúar síðastliðnum en birtur var í dag mun Birna hafa 25 milljónir króna í árslaun. Samkvæmt ársreikningi Íslandsbanka frá árinu 2015 hafði Birna 43,7 milljónir króna í árslaun en ársreikningur bankans fyrir árið í fyrra hefur ekki verið birtur.

Málið hefur verið inn á borði kjararáðs síðan í júní á síðasta ári eða frá því að því var tilkynnt um yfirtöku íslenska ríkisins á Íslandsbanka. Samkvæmt lögum um kjararáð skal kjararáð ákveða laun og starfskjör framkvæmdastjóra félaga sem eru að meirihluta í eigu ríkissjóðs og dótturfélaga þeirra.

Launabreytingin tekur ekki gildi samstundis

Launabreytingin mun þó ekki taka gildi strax. Breyting kjararáðs á ráðningarsamningi Birnu jafngildir uppsögn á samningnum og mun þá uppsagnarfrestur taka gildi. Þetta kom fram í skriflegu svari Friðriks Sophussonar, stjórnarformanns Íslandsbanka, til Fréttablaðsins í janúar síðastliðnum eftir að hann var inntur um svar við því hvort kjararáð hefði úrskurðað um laun Birnu.

„Verði núgildandi ráðningarsamningi breytt með úrskurði kjararáðs jafngildir það uppsögn á samningnum og tekur þá uppsagnarfrestur gildi. Af því má ljóst vera að starfskjör bankastjóra munu ekki breytast á næstunni,“ sagði Friðrik.

Launakjör munu heyra undir bankaráð eftir að ný lög taka gildi

Samkvæmt nýjum lögum um kjararáð sem taka gildi þann 1.júlí næstkomandi munu ákvarðanir um laun bankastjóra ríkisbankanna tveggja, Íslandsbanka og Landsbankans, heyra undir bankaráð. Talið er að Birna sé með tólf mánaða uppsagnarfrest og mun ákvörðunin því ekki hafa áhrif á starfskjör Birnu áður en lagabreytingin tekur gildi.

Birna sagði á uppgjörsfundi í Íslandsbanka í febrúar 2016 að hún myndi íhuga stöðu sína hjá bankanum ef kjör hennar myndu breytast. Lét hún þess þó getið að þrátt fyrir launalækkun yrði hún með töluvert há laun miðað við aðra starfsmenn bankans. 


Tengdar fréttir

Kjararáð ekki enn lækkað laun bankastjóra Íslandsbanka

Launakjör Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, hafa ekki breyst þrátt fyrir að fyrirtækið sé búið að vera í eigu ríkisins í tæpt ár. Fær um 28 milljónum meira en ef kjararáð hefði úrskurðað á yfirtökudegi. Launin munu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×