Innlent

Kjaradeilan í Straumsvík: „Rio Tinto vill sem sagt bæði eiga kökuna og éta hana“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Álverið í Straumsvík.
Álverið í Straumsvík. VÍSIR/VILHELM
Samninganefnd stéttarfélaganna í Straumsvík fer hörðum orðum um Rio Tinto, móðurfélag álversins í Straumsvík, í yfirlýsingu sem hún hefur sent frá sér. Yfirlýsingin er svar við grein Ólafs Teits Guðnasonar, upplýsingafulltrúa Rio Tinto, sem birtist í Fréttablaðinu í liðinni viku. Í yfirlýsingunni segir:

„Greinina mætti draga saman í eina allsherjarkvörtun undir yfirskriftinni „Rio Tinto: er eina fyrirtækið sem...“ og síðan kemur margvíslegur harmagrátur um það hversu óréttláta meðferð Rio Tinto hljóti af hálfu íslenskra starfsmanna sinna.

Sú upptalning er meira og minna til þess fallin að flækja málið.“

Stóra myndin er að mati saminganefndarinnar hins vegar einföld:

„Á meðan forstjóri Rio Tinto þiggur 6 milljónir á mánuði í laun, sjá bókarar Rio Tinto ofsjónum yfir þeim launum sem 32 Íslendingar sem sinna mötuneyti, hliðvörslu, hafnarvinnu og þvottahúsi fá greidd. Rio Tinto vill ekki greiða íslensk laun fyrir þessi störf. Þeir vilja fá erlenda gerviverktaka til að sinna þeim á launum sem eru langt undir íslenskum töxtum.“

Í yfirlýsingunni eru síðan talin upp nokkur atriði sem Rio Tinto eru einir um á íslenskum vinnumarkaði:

„Álverin eru einu fyrirtækin sem fá sérkjör á orkuverði.

Álverin eru einu fyrirtækin sem komast upp með að greiða lágmarksskatta, en skila um leið erlendum eigendum sínum ofurgróða.

Rio Tinto er eina fyrirtækið á Íslandi sem hefur í 45 ár aðeins þurft að eiga við eitt sameinað trúnaðarráð stéttarfélaga þegar semja á um kaup og kjör.

Rio Tinto er líklega eina stórfyrirtækið hérlendis sem hefur ALDREI þurft að þola verkfall af hálfu starfsmanna sinna.

En nú er svo komið að Rio Tinto er ekki bara eina fyrirtækið sem hefur notið þessara sérkjara á íslenskum vinnumarkaði, heldur eru þeir örugglega líka eina fyrirtækið sem lætur sér detta í hug að kvarta yfir þessari skipan mála.

Rio Tinto vill sem sagt bæði eiga kökuna og éta hana. Og það veit hvert fimm ára barn að er ekki hægt.

Kjaradeila starfsmanna álversins við Rio Tinto snýst um eitt einfalt grundvallaratriði: Að borguð séu íslensk laun fyrir störf í Straumsvík.

Íslenskt orkuverð og erlend skattafríðindi í áratugi ættu að vera stórfyrirtækinu og stjórnendum þess næg greiðsla fyrir að vernda störf 32 lægst launuðustu starfsmannanna í álverinu. Krafa okkar er íslensk laun fyrir störf í Straumsvík og fyrr verður ekki samið.“


Tengdar fréttir

Fjöldi reyndra starfsmanna hafa sagt upp í álverinu

Fjöldi starfsmanna með áralanga starfsreynslu í álverinu í Straumsvík hafa sagt upp störfum þar undanfarnar vikur. Talsmaður starfsfólks segir það langþreytt á margra mánaða kjarabáráttu og vill að verkalýðsfélögin setji aukinn þunga í að leysa málin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×