Skoðun

Kjalvegur á samgönguáætlun

Herbert Hauksson skrifar
Mesti umferðarþungi er nú á Kjalvegi frá upphafi. Fyrir fjórum árum var 100 bílum á dag ekið eftir Kjalvegi mánuðina júní til ágúst. Nú eru þetta um 1.000 bílar á dag, sem er gífurleg fjölgun. Vegagerðin hefur viðhaldsfé í veginn sem dugar skammt þar sem umferðin grefur veginn niður á nokkrum vikum. Kjalvegur er hættur að vera fáfarinn vegslóði.

Aukinn ferðamannastraumur innlendra sem erlendra ferðamanna er ástæðan fyrir aukinni umferð um Kjalveg. Mikil uppbygging hefur átt sér stað hjá þeim ferðaþjónustufyrirtækjum sem við Kjalveg standa. Kjalvegur er lífæð margra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Enn fleiri hafa það að lífsviðurværi að skipuleggja og selja erlendum ferðamönnum inn á Kjalvegssvæðið. Gleymum ekki ríkissjóði sem hefur fínar tekjur af þessu. Vetrarferðamennska hefur stóraukist undanfarin ár. Sem dæmi má nefna að um 120.000 meiraborgandi erlendir ferðamenn heimsækja Langjökul við Kjalveg alla 365 daga ársins. Við markaðssetjum og ferðumst um allan heim til að ná í þessa ferðamenn.

Kjalvegur er byggður úr því efni sem er í næsta umhverfi við veginn. Það er svipað efni sem kom úr Eyjafjallajökulsgosinu, efni sem ekki er talið hollt til innöndunar. Þið munið. Allir með öndunargrímur.

Aðrir hlutar vegarins eru niðurgrafnar ýtuslóðir. Kjalvegur var ágætlega boðlegur árið 1980 en nú er 2016 og allt aðrar forsendur. Vegna mikillar umferðar er yfirborð vegarins með þeim hætti að hann telst ekki boðlegur fólki sem um veginn fer.

Við þurfum þrjár meginatvinnugreinar til að komast af í þessu landi. Ferðaþjónustan er ein þeirra en því miður hafa innviðirnir verið látnir sitja á hakanum. Vegagerðin hefur af veikum mætti reynt sem hún getur að klóra í bakkann. Starfsmenn Landverndar hafa nú ekki verið hjálpsamir og kært allt viðhald á veginum, áratug aftur í tímann. Kærum Landverndar hefur nú reyndar verið vísað frá þar sem ekki hefur verið hald í rökstuðningi.

Það eru alltaf einhverjir á móti vegabótum á hálendinu en ég lofa þeim því að þó Kjalvegur verði gerður betri eru eftir sem áður til fleiri þúsund kílómetrar af fáförnum, aurugum vegarslóðum til að leika sér á.

Kjalvegur er verkfæri til að komast að auðlind sem við öll höfum tekjur af með einum eða öðrum hætti. Ég skora hér með á alla þá sem vettlingi geta valdið í pólitík og stjórnkerfinu að setja Kjalveg inn á vegaáætlun og stuðla þannig að hagsæld fólksins í landinu.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Sjá meira


×